14.06.2018
Ferðafélag Akureyrar fór í Fossdal 9. júní. 30 manna hópur lagði af stað frá Kleifum í björtu og góðu veðri. Þægileg gönguleið, fyrir utan Flyðrubekkjargilið, um grónar götur að vitanum á Sauðhólsmel og þaðan var gengið inn Fossdalinn. Hvanndalabjargið, hæsta standberg í sjó fram á Íslandi, blasti við og hömrum girtur Fossdalurinn var tignarlegur. Fararstjóri, Helga Guðnadóttir.
Myndir má sjá á myndasíðunni okkar.
13.06.2018
Hólafjall. 862 m
16. júní. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Leo Broens. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
10.06.2018
Ingimar Árnason
07.06.2018
Minnum á næstu ferð og hvetjum sem flesta til að taka þátt:
Fossdalur í Ólafsfirði
9. júní. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá Ytri-Á á Kleifum í Ólafsfirði og út í Fossdal. Tilvalin fjölskylduferð. Vegalengd ca. 10-12 km. Gönguhækkun ca. 100 m.
Munið að skrá ykkur
28.05.2018
Ingimar Árnason
22.02.2018
Opið hús verður fimmtudaginn 1. mars kl. 20:00 að Strandgötu 23.
Þorsteinsskáli:
Niðurrif skála og endurbygging á nýjum stað. Hjalti Jóhannesson segir frá í máli og myndum
Kaffi og spjall á eftir. Allir velkomnir
22.02.2018
Aðalfundur Ferðafélags Akureyrar verður haldinn að Strandgötu 23 kl. 20:00 þann 20. mars næstkomandi. Á dagskrá verða almenn aðalfundarstörf.
20.02.2018
Ingimar Árnason
20.02.2018
Ingimar Árnason
18.02.2018
Ingvar Teitsson
FFA efndi til þorrablóts í Botna helgina 17.-18. feb. 2018. Smellið á MYNDIR til að fræðast um ferðina.