24.11.2005
Ferðafélag Akureyrar
Útilífssýningin Vetrarsport 2006 verður haldinn
í íþróttahöllinni á Akureyri 26. og 27. nóvember.
09.11.2005
Ferðafélag Akureyrar
Haukur Jóhannesson jarðfræðingur og fyrrv. forseti
Ferðafélags Íslands heldur myndasýningu um Ódáðahraun mánudaginn 14. nóvember nk.
02.11.2005
Ferðafélag Akureyrar
Ferðafélag Akureyrar (FFA) hefur byggt upp fyrsta flokks aðstöðu fyrir ferðafólk
við Drekagil hjá Öskju. Hér er skálinn Gamli-Dreki frá 1968 með 20 svefnplássum og snyrtihús frá 2001 með vatnssalernum og gaskyntum
sturtum. Loks er nýr og glæsilegur skáli (Nýi-Dreki) frá 2005 með ágætri gistiaðstöðu fyrir 40 manns. Í Nýja-Dreka eru
tvö 5-manna svefnherbergi á jarðhæð og tvískipt svefnloft með upphækkuðum bálkum fyrir 30 manns. Þá er mjög
rúmgóð borstofa með eldhúsaðstöðu og rúmgóð forstofa. Einnig er vatnssalerni í Nýja-Dreka. Í Nýja-Dreka er
raflýsing frá sólsellum. Á sumrin eru tvö tjaldstæði við Drekagil og þar er landvarsla í júlí og
ágúst.