05.02.2011
Ingimar Árnason
10. febrúar. Ferðakynning 2011
Ferðir ársins kynntar í máli og myndum í Hömrum, litla salnum í Hofi, kl. 20.00.
Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar kynnir.
Fyrirlesari: Páll Ásgeir Ásgeirsson og fjallar hann um Fjallabak og hinn “óeiginlega Laugaveg” og ferðamöguleika þar.
Kynning á útivistarvörum frá 66°Norður, Sportveri og Skíðaþjónustunni.
Aðgangseyrir kr. 1.000. Hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti á veitingastaðnum í Hofi.
02.02.2011
Skrifstofan verður opin á föstudögum fram á vor frá 17:00 - 19:00 þegar ferð er á dagskránni næsta laugardag.
Stjórnin
01.02.2011
Hjalti_Fjóla
Fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20 verður opið hús hjá FFA. Að þessu sinni er ekki um skipulagða dagskrá að ræða en kaffi og
meðlæti við höndina. Um að gera að nota tækifærið og setjast niður og spjalla. Jafnframt er minnt á ferðakynningu sem verður fimmtudaginn
10. febrúar.
28.01.2011
Ingimar Árnason
5. febrúar Staðarbyggðarfjall. Gönguferð Skór
Þægileg ferð í nágrenni Akureyrar. Gengið frá sumarhúsinu Seli upp að vörðunni nyrst á Hausnum. Þá er gengið inn
eftir fjallinu um greiðfær holt inn að Helgárdal. Upplögð fjölskylduferð.
Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 10.00
06.01.2011
Fundi sem halda átti í kvöld, 6. janúar, er frestað um óákveðinn tíma vegna slæms veðurútlits.
Stjórnin
01.01.2011
Ingvar Teitsson
FFA efndi til nýársgöngu um Vaðlareit um hádegisbilið á nýársdag 2011. Smellið á MYNDIR til að fræðast nánar um
ferðina.
31.12.2010
Frímann Guðmundsson
Ferðafélag Akureyrar óskar öllum gleðiilegs nýs árs og
þökkum fyrir þau gömlu góðu
Nýársganga 1.janúar 2011 frá Strangötu 23 kl.11
Gengið verður um Vaðlareit.
Vissara að hafa mannbrodda.
30.12.2010
Félagafundur FFA fimmtudaginn 6. janúar 2011 klukkan 20:00 í Strandgötu 23.
Efni fundarins:
- Farið yfir starf síðastliðins árs
- Hugmyndir óskast um framtíðarstefnu félagsins
- Ungt fólk og FFA
- Gönguhópar og FFA
- Hvernig getur FFA verið sýnilegra?
Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í að móta framtíð FFA.
Stjórnin
05.12.2010
Ingvar Teitsson
Ferðafélag Akureyrar efndi til aðventuferðar á slóðir Fjalla-Bensa dagana 4. - 5. desember 2010. Smellið á MYNDIR til að sjá hvernig
ferðin gekk.
27.11.2010
Hjalti_Fjóla
Fimmtudaginn 2. desember kl. 20.00 verður opið hús í Strandgötu 23. Jón Hjaltason, sagnfræðingur heldur fyrirlestur sem hann kallar "Nonni -
mótunarár og æskuraunir".
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.