26.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
1.júlí: Mælifellshnjúkur, 1147 m (2 skór).
26.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
2.júlí: Hvanndalabjarg. (2 skór)
19.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
Blámannshattur, 1214 m.
19.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
Lofthellir í
Mývatnssveit.
13.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
21. júní. Sumarsólstöður á Ystuvíkurfjalli, 606 m
05.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
Fífilbrekkuhátíð 2006
Hin árlega Fífilbrekkuhátíð á vegum Menningarfélagið Hraun í Öxnadal ehf verður haldin á Hrauni í Öxnadal
laugardag 10. júní n.k.
Gengið verður frá bænum á Hrauni kl.14 upp Kisubrekku um Stapana að Hraunsvatni og dvalist við vatnið um hríð en haldið aftur niður með
Hraunsá heim að bænum á Hrauni.
Leiðsögumaður á göngunni verður dr. Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur sem segir frá landi og staðháttum.
Þórir Haraldsson náttúrufræðingur segir frá blómum og jarðargróða. Dr. Skúli Skúlason líffræðingur,
rektor Hólaskóla, segir frá lífinu í Hraunsvatni en Tryggvi Gíslason segir frá “dauðanum í Hraunsvatni” og áhrifum hans
á líf og lífsviðhorf Jónasar Hallgrímssonar.
05.06.2006
Ferðafélag Akureyrar
Sunnudaginn 11. júni verður farið í létta og þægilega göngu fram með bökkum Eyjafjarðarár, frá gömlu brúnum sunnan
við flugvöllinn að Hrafnagili. Skoðað verður fuglalífið á leiðinni undir leiðsögn fróðra manna.
Þetta er upplögð sunnudagsganga fyrir alla fjölskylduna.
Verð kr. 1.100 fyrir félagsmenn, en kr. 1.300 fyrir aðra.
Brottför frá skrifstofu FFA kl. 9.00.
Hægt er að skrá sig í ferðina í tölvupósti ffa@ffa.is eða í síma 462 2720.
Skrifstofa FFA, Strandgötu 23, er opin mánudaga - föstudaga frá kl. 16.00 – 19.00.
26.05.2006
Ferðafélag Akureyrar
Hér eru upplýsingar til þátttakenda í ferð FFA/FÍ á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnu:
Undirbúningsfundur verður þriðjudaginn 30. maí kl. 20:00 í húsnæði FFA, Strandgötu 23.
21.05.2006
Ferðafélag Akureyrar
2. – 5. júní. Hvannadalshnjúkur á Hvítasunnu.
Þessa helgi verður farið frábæra ferð í samvinnu við Ferðafélag Íslands.
Ekið verður á einkabílum í Skaftafell föstudaginn 2. júní og verður gist í svefnpokaplássi eða tjaldi í
Svínafelli.
Gengið verður á Hnjúkinn laugardaginn 3. júní, en sunnudagurinn er til vara vegna veðurs. Hæðarhækkun er 2000 metrar, en gengið verður
rólega með mörgum smá hvíldum og áætlað er að gangan taki í heild 10 – 15 klst.
Ekið verður heim daginn eftir uppgöngu.
Fararstjórar verða reyndustu fjallamenn með Harald Örn Ólafsson í fararbroddi.
08.05.2006
Ferðafélag Akureyrar
Frímann Guðmundsson sendi nýverið inn nokkrar myndir og tveimur síðustu ferðum félagsins, annars vegar úr ferð á Súlur 1.
maí og úr skiðaferð á Kröflusvæðið.
Myndirnar eru á myndasíðu