Smíði skálavarðarhúss fyrir Laugafell
Smíði skálavarðarhúss fyrir Laugafell miðar vel áfram. Haldið var áfram með verkið þ. 18.04.09. Smellið á MYNDIR til að sjá hvernig gengur.
Smíði skálavarðarhúss fyrir Laugafell miðar vel áfram. Haldið var áfram með verkið þ. 18.04.09. Smellið á MYNDIR til að sjá hvernig gengur.
Farið verður upp á Kaldbakshnjúk við Öxnadalsheiði, ferðin verður annaðhvort farin á skíðum eða fótgangandi. Ekið er upp á Öxnadalsheiði að endurvarpsmastrinu og síðan gengið upp á Kaldbakshnjúkinn inn fyrir Kaldbaksdalinn og síðan niður á veg.
Fararstjóri í ferðinni verður Konráð Gunnarsson.
Brottför verður frá FFA kl. 9:00 á sunnudagsmorgun, og kostar ferðin kr. 1.500,-, en kr. 1.000,- fyrir félagsmenn FFA.
Athugið: síðasta ferð fyrir páska.
Ekið að bænum Öxará í Bárðardal og lagt á Háafell þaðan. Af fellinu er hið fegursta útsýni til allra átta.
Fararstjóri í ferðinni verður Ingvar Teitsson.
Brottför er frá FFA kl. 9:00 á laugardagsmorgun 4. apríl og kostar ferðin kr. 1.500,-, en kr. 1.000,- fyrir félagsmenn FFA.
27.-29. mars - Klaustur-Húsavík - skíðaferð.
Aflýst vegna þátttökuleysis og veðurútlits. Skíðaferð í Baugasel kl. 10:00 laugardag.
Haldið var áfram að smíða skálavarðarhús f. Laugafell í blíðskaparveðri laugardaginn 21. mars 2009. Smellið á MYNDIR til að sjá hvernig gekk.