04.04.2011
Frímann Guðmundsson
27.03.2011
Ingvar Teitsson
FFA efndi til skíðaferðar norður Fljótsheiði um Fjallshnjúk að Hafralæk í Aðaldal þ. 26. mars 2011. Smellið á MYNDIR
til að sjá hvernig ferðin gekk.
26.02.2011
Hjalti_Fjóla
Fimmtudaginn 3. mars verður opið hús hjá FFA að Strandgötu 23. Jónas Helgason, menntaskólakennari segir frá landafræði og menningu
Færeyja. Fyrirlesturinn hefst kl. 20. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
13.02.2011
Ingimar Árnason
Myndir og ferðasaga komnar á
myndasíðu
13.02.2011
Frímann Guðmundsson
11.02.2011
Frímann Guðmundsson
08.02.2011
Lagt er af stað við afleggjarann á Leirdalsheiði og er gengið út heiðina í skálann á Gili þar sem snæddur verður
kjarngóður þorramatur og drukknar hinar dýrustu guðaveigar um kvöldið.
Daginn eftir er gengið til baka um Trölladal.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson
Verð: kr 4.000 / kr. 3.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 9.00
05.02.2011
Ingimar Árnason
10. febrúar. Ferðakynning 2011
Ferðir ársins kynntar í máli og myndum í Hömrum, litla salnum í Hofi, kl. 20.00.
Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar kynnir.
Fyrirlesari: Páll Ásgeir Ásgeirsson og fjallar hann um Fjallabak og hinn “óeiginlega Laugaveg” og ferðamöguleika þar.
Kynning á útivistarvörum frá 66°Norður, Sportveri og Skíðaþjónustunni.
Aðgangseyrir kr. 1.000. Hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti á veitingastaðnum í Hofi.
02.02.2011
Skrifstofan verður opin á föstudögum fram á vor frá 17:00 - 19:00 þegar ferð er á dagskránni næsta laugardag.
Stjórnin
01.02.2011
Hjalti_Fjóla
Fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20 verður opið hús hjá FFA. Að þessu sinni er ekki um skipulagða dagskrá að ræða en kaffi og
meðlæti við höndina. Um að gera að nota tækifærið og setjast niður og spjalla. Jafnframt er minnt á ferðakynningu sem verður fimmtudaginn
10. febrúar.