- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
- Umsagnir
Mæting við FFA, Strandgötu 23 kl. 13. Þar er ferðin borguð og safnast saman í bíla ef vill.
Brottför frá Skógarböðunum kl. 13:30 með rútu.
Fararstjórn: Jóhanna Ásmundsdóttir
Farið með rútu að Systragili í Fnjóskadal. Þaðan verður Þingmannavegurinn genginn, þ.e. yfir Vaðlaheiði. Komið niður við Eyrarland Eyjafjarðarmegin. Þetta er gömul þjóðleið og því tilvalið að skoða gömlu steinbrúna, grjóthleðslu frá 1871. Að mestu er gengið eftir slóðum. Endað er á því að ganga frá Eyrarlandi að Skógarböðunum. Gaman væri að hópurinn endaði í Skógarböðunum og borðaði síðan á Skógur Bistro, það er vissulega frjálst. Þeir sem ekki kjósa það geta þá farið beint heim.
Vegalengd: 12,5 km. Gönguhækkun: 600 m.
Verð: 6.500 / 8.500 kr. Innifalið: Rúta og fararstjórn. Ekki innifalið: Matur og aðgangur að Skógarböðunum.
Skráning í ferð
Búnaður
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.