- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
- Umsagnir
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Þuríður Helga Kristjánsdóttir
Ekið á einkabílum að Þormóðsstöðum í Sölvadal. Þaðan er gengið upp hlíðina eftir gömlum akvegi á hrygg Hólafjalls. Gott útsýni er yfir byggðina og út Eyjafjörðinn. Gengið er til baka að Þormóðsstöðum.
Vegalengd alls 8 km. Gönguhækkun 580 m.
Verð: 2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Skráning í ferð
Búnaður
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.