- 15 stk.
- 22.06.2017
Gengið var upp með Reyká í Eyjafirði. Þegar farið var úr bænum var rok og rigning, en þegar við komum inn að Laugaborg var þar nánast logn en smá dropar. Það er alltaf gaman að fara upp með Reyká og sjá hvað gróðurinn hefur vaxið mikið frá því síðast. og þeir sem vilja fara lengra þá er stikuð gönguleið alveg upp á Bónda. Myndir og fararstjórn Frímann Guðmundsson.