- 28 stk.
- 12.06.2013
Gönguvika Bryðjuskál. 14 manns auk fararstjóra gengu upp í Bryðjuskál frá Sigtúni 10 konur 5 karlar. Allir fóru upp enn voru mislengi enda voru á ferðinni bæði vanir og óvanir. Enginn af hópnum nema fararstjórinn hafði komið í Bryðjuskál. Veðrið lék við okkur alla leið og útsýnið gott. Ekki var mannskapurinn þreyttari en það eftir ferðinna í skálina að allir voru tilbúnir í meira. Skutumst við suður að Þverá og skoðuðum gamla virkjun og fossinn í ánni. Góð ferð með kátan hóp. Myndasmiður og farastjóri Konráð Gunnarsson.