- 17 stk.
- 11.06.2013
Gönguvika FFA - gengið var á Ystuvíkurfjall frá bílastæði á Víkurskarði þangað sem við höfðum ekið upp úr dimmri þokunni og var veður hið besta. Víða voru fannir í hlíðum en göngufæri gott. Toppnum var náð kl. 21:30 í sólbjörtu veðri og við blasti þokufylltur Eyjafjörðurinn. Þáttakendur í ferðinni voru 12 manns. Fararstjóri var Grétar Grímsson. Ljósmyndarar Frímann Guðmundsson og Grétar Grímsson