- 33 stk.
- 28.07.2012
FFA efndi til ferðar á Öskjuveginn 20.-24. júlí 2012. Ekið var um Herðubreiðarlindir og gist í Dreka. Daginn eftir var þoka á hærri fjöllum. Því var ekið upp í Öskjuop og gengið þaðan að Víti. Síðdegis var farið að Svartá við Vaðöldu. Þann 22. júlí var gengið yfir Jónsskarð í ágætu veðri og í Dyngjufell. Þann 23. júlí var norðan súld og lágskýjað. Þá var gengið í Botna. Lokadaginn var gengið niður með Suðurá og í Svartárkot og ekið þaðan til Akureyrar. Þátttakendur voru 12, auk fararstjóra, bílstjóra og kokks. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson