- 18 stk.
- 21.06.2011
Gengið var upp með Bróká og að eyðibýlinu Klúkum. Mikill fengur var að fá Pál Ingvarsson frá Reykhúsum með í för, sem er staðkunnugur og sagði hann okkur margar sögur frá kotbúskapnum á Klúkum. Endað var á því að fara upp að selinu frá Klúkum. Á heimleiðinni voru margir fossar skoðaðir. Frímann Guðmundsson var fararstjóri og á texta og myndir.