- 13 stk.
- 12.07.2009
Farin var kvöldganga að Skólavörðu á Vaðlaheiði þ. 10.07.09. Lagt var af stað frá skrifstofu FFA kl. 19 og ekið að Veigastöðum. Gengin var stikaða leiðin sunnan Bæjarkletta upp að vörðunni. Veður var bjart og milt og frábært útsýni yfir Eyjafjörð og nágrenni. Síðan var gengið sömu leið til baka. Þátttakendur voru 26, fararstjóri og myndasmiður var Ingvar Teitsson.