- 21 stk.
- 21.01.2016
Ferðakynningin var haldin í fjölnotasal VMA og kynnti Frímann Guðmundsson ferðir sem boðið er upp á í ferðaáætlun félagsins 2016. Að kynningu lokinni þáðu gestir kaffiveitingar og var skreytt afmælisterta á borðum í tilefni 80 ára afmælis ferðafélagsins. Eftir kaffihlé flutti Edvard H Huijbens fróðlegt erindi um ferðamál. Að venju kynntu útivistarverslanir vörur sínar við þetta tækifæri.