- 14 stk.
- 16.02.2014
Ferðafélagið hélt sína árlegu ferðakynningu 13. febrúar í Hofi. Frímann Guðmundson formaður ferðanefndar kynnti ferðir ársins í máli og myndum og er þar m.a. boðið upp á raðgöngur, næturgöngur og gönguverkefnið - Eitt fjall á mánuði - auk hefðbundinna ferða félagsins. Fyrirlesari á kynningunni var Jón Gauti Jónsson sem flutti afar fróðlegan fyrirlestur um fjallgöngur og fjallamennsku.
Skíðaþjónustan og Sportver kynntu útivistarvörur sínar. Myndir tók Grétar Grímsson.