Selma S. Malmquist
Fararstjóri
Selma er borinn og barnfæddur Akureyringur sem hefur alltaf haft unun af því að hreyfa sig. Handboltinn tók mestan tíma framan af en þegar honum sleppti tók við ýmiss konar fjallabrölt á hjóli, skíðum eða tveimur jafnfljótum.
Selma er menntaður kennari og lögreglumaður en það var í hálendisgæslu hjá lögreglunni sem hún smitaðist endanlega af fjallabakteríunni. Selma hefur reynt að verja eins miklum tíma og hún mögulega getur til fjalla síðustu ár meðal annars við skálavörslu í Dreka, Herðubreiðarlindum og Laugafelli.
Selma útskrifaðist úr Fjallamennskunámi FAS 2023.
Ómissandi í bakpokann:
Hnetur og súkkulaði
Uppáhalds leiksvæði:
Tröllaskagi og hálendið norðan Vatnajökuls