Þaulinn 2024 - gönguleikur

Þaulinn, hinn sívinsæli gönguleikur Ferðafélags Akureyrar, er kominn á heimasíðu FFA. Þaulinn er skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna og tækifæri til hollrar útiveru við Eyjafjörð. Fjölbreyttar útivistarvörur í vinninga fyrir þá sem verða heppnir þegar dregið verður úr innsendum svarblöðum.

Á heimasíðu FFA er hægt að nálgast lýsingar og kort af leiðunum í Þaulanum og prenta út svarblöð fyrir þátttakendur. Svarblöð er einnig hægt að nálgast á skrifstofu FFA, Strandgötu 23, Akureyri. Reiknað er með að kassarnir verði komnir á stöðvarnar 13. júní.

Kynnið ykkur Þaulann 2024 hér