Samstarf við Krabbameinsfélag Akureyrar

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í samstarfi við Ferðafélag Akureyrar ætlar að bjóða upp á þrjár göngur í maí og júní. Göngurnar eru fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur. Hver ganga er um tveir klukkutímar og boðið upp á hugleiðslu út í náttúrunni og góðan félagskap. Farastjóri frá Ferðafélagi Akureyrar er Þuríður Helga Kristjánsdóttir, jóga- og núvitundarkennari sem hefur verið farastjóri hjá FFA síðan árið 2021.

28. maí – Gönguferð um friðland Dalvíkur/Svarfaðadal
2. júní – Gönguferð í vestanverðum Þengilshöfða
10. júní – Gönguferð í Vaglaskógi

Mæting er fyrir utan skrifstofu félagsins (að framan) kl. 13 og lagt á stað kl. 13:15 með því að sameinast í bíla.

Til að skrá sig í ferðirnar má senda póst á kaon@krabb.is og taka fram fjölda einstaklinga og símanúmer.

Enginn þátttökukostnaður.