- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Bryðjuskál í Staðarbyggðarfjalli
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Tími: 3-4 klst.
Bryðja var tröllkerling sem átti heima í Bryðjuskál í fjallinu fyrir ofan Munkaþverá. Gengið er upp frá bænum Sigtúnum um gróið land, upp með Smáragili þar sem má sjá fossaröð, þar á meðal Silfurfoss. Ferðin er nokkuð á fótinn en hækkunin er aðeins 270m. Farið verður rólega til að njóta ferðarinnar. Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur á hverjum tíma, gæta hreinlætis, hafa handspritt meðferðis og taka tillit til ferðafélaga nú þegar tveggja metra reglan er valkvæð.