- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
- Umsagnir
Skíðadalur: Skíðaganga
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Kristján E. Hjartarson
Ekið að hliði innan við bæinn Þverá í Skíðadal, þar sem fararstjóri hittir hópinn. Gengið þaðan inn að Sveinsstöðum með viðkomu í Stekkjarhúsum eða eftir því sem færð leyfir.
Dalurinn er frábært skíðasvæði og mjög fallegur í vetrarbúningi.
Vegalengd alls 13-14 km. Gönguhækkun 200 m.
Verð: 2.700/4.400. Innifalið: Fararstjórn.