2. sept. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið er á Hleiðargarðsfjall frá Saurbæ og haldið upp fjallshrygginn þar til komið er á toppinn. Gott útsýni er yfir byggðina og út Eyjafjörðinn af fjallinu. Farin er sama leið til baka. 4 km hvor leið. Hækkun 960 m.