- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Glerárdalur - blómaskoðunarferð
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Brynhildur Bjarnadóttir.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Áætlaður göngutími er 4–6 klst.
Gengið frá bílastæði við Súlumýrar og inn Glerárdal, á leiðinni verður lögð áhersla á blómin sem á vegi verða. Við tökum okkur tíma til að skoða, greina og ræða um gildi þeirra og hlutverk í náttúrunni. Gott að hafa með sér plöntugreiningarbók, stækkunargler og nesti. Gangan er bæði á jafnsléttu en líka eitthvað á fótinn framar í dalnum. Þægileg gönguferð sem hentar öllum aldri. Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur á hverjum tíma, gæta hreinlætis, hafa handspritt meðferðis og taka tillit til ferðafélaga nú þegar tveggja metra reglan er valkvæð.