- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Skuggabjargaskógur - haustlitaferð
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Anna Blöndal.
Verð 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Draflastöðum og gengið þaðan út hlíðina og upp á Múlana og skógræktin skoðuð. Síðan út að Skuggabjörgum þar sem staldrað verður við hjá gömlu bæjarrústunum og fræðst um svæðið. Til baka verður farin neðri leiðin, skógargróður skoðaður og hugað að hrútaberjum - ef vill. Þá verður haldið að Draflastöðum, þar sem gott væri að fá sér kaffisopa - ef vill. Vegalengd 14 km. Hækkun um 200 m. Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og eins metra fjarlægð, gæta hreinlætis og hafa handspritt meðferðis.