Haus í Staðarbyggðarfjalli

Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Roar Kvam. Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá sumarhúsinu Seli upp brekkurnar að vörðunni nyrst á Hausnum. 430m. Gengið inn eftir fjallinu og niður austan megin. Af Hausnum er mikið og fagurt útsýni yfir héraðið.