Á
Verkalýðsdaginn 1. maí verður farin árleg ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar. Gangan hefst við réttina á Glerárdal og verður
gengið eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Ferð við flestra
hæfi.
Fararstjóri verður Kári Árnason, ekkert kostar í ferðina og verður mæting og
brottför við réttina á Glerárdal kl. 9:00.