- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
31. júlí. Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Sigurgeir Sigurðsson. Verð: 10.800/10.300. Innifalið: Fararstjórn og akstur.
Ekið er til Húsavíkur og á Þeistareykjaveg að vegslóða út að Sæluhúsmúla. Þaðan verður gengin hin forna leið Bláskógavegur (ath. ekkert vatn á leiðinni!) að býlinu Undirvegg í Kelduhverfi. Komið við í Gljúfrastofu ef aðstæður leyfa. 21 km.