- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Brottför kl. 8 í fjallarútu frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 9.500/9.000 Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Ekið austur að Hrossaborg og suðurHerðubreiðarslóð (F88) á móts við Ystafell sunnanvert þar sem gangan hefst. Gengið um hraunið til vesturs í stefnu á Vörðukamb í Fjallagjá og þaðan fylgt vörðum í átt að Sveinagjá. Þegar komið er yfir gjána er tekin stefna af vörðuleiðinn norður með Nýjahrauni og í Fjallaborg þar sem gist verður. Daginn eftir er gengið um Taglabruna suður á vörðuleiðina og þá vestur um Þrengsli og að Lúdentsborgum. Vegalengd alls um 47 km.
Ath. Að ekkert vatn er að hafa á leiðinni.