- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Siglunes - sigling og gönguferð
31. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Una Þ. Sigurðardóttir. Verð: 11.500 /10.000. Innifalið: Fararstjórn og sigling.
Siglt frá Siglufirði út á Siglunes. Gengið um Siglunes og síðan haldið áleiðis fram Nesdal og yfir Kálfskarð til Siglufjarðar. Vegalengd 15-16 km, mesta hæð 450 m. Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig. Greiða þarf þátttökugjald fimmtudaginn 29. ágúst.