- 41 stk.
- 01.09.2010
Lagt var af stað frá Akureyri um kl. 16:00 mánudaginn 26. júlí. Þær fréttir höfðu borist að ófært væri um Herðubreiðalindir og vegurinn lokaður þar sem Jökulsá á fjöllum væri í vexti og flæddi upp í Lindá og vaðið væri svo djúpt að engum væri fært. Því var farið austur fyrir Jökulsána og upp hjá Grímstöðum á Fjöllum. Bílstjórinn hafði á orði að sér fyndist vegurinn góður fjallavegur þótt öllum öðrum í rútunni fyrndist nóg um endalaus þvottabretti. Allt gekk þetta þó og um kl. 22:00 var komið í Dreka. Fararstjóri Frímann Guðmundsson.