- 3 stk.
- 11.08.2013
Þann 11. ágúst 2013 fóru þrír félagar úr FFA og endurstikuðu gönguleiðina fram í Lamba. Alls var 23 nýjum stikum bætt við á þessari 11 km löngu gönguleið. Nú eru þar um 70 m á milli stika að meðaltali. FFA stikaði þessa leið upphaflega árið 1992. Gönguleiðanefnd FFA sá um verkið. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.