- 8 stk.
- 28.12.2022
Barna- og fjölskylduferð í Lamba. Ferðin átti að vera strax eftir verslunarmannahelgi en vegna veðurs var henni seinkað um viku. Börn og foreldrar gengu inn Glerárdal í blíðskapar veðri, gist var eina nótt. Leikið, spilað og sungið áður en lagst var til hvílu. Gengið til baka daginn eftir. Börnin stóðu sig einstaklega vel í alla staði og er fyrirhugað að endurtaka ferðina að ári. Fararstjóri var Jónína Sveinbjörnsdóttir. Myndirnar tók Hulda Jónsdóttir.