- 8 stk.
- 14.02.2022
Laugardaginn 12. febrúar fór 11 manna hópur á gönguskíðum í Þorvaldsdal. Gengið var í skálann Derri í góðu færi og stilltu veðri. Þangað er um 9 km leið frá Stærra Árskógi. Allt gekk eins og í sögu og tók gangan tæpa sex tíma báðar leiðir með stoppi í skálanum. Áslaug Melax og Fjóla Kristín Helgadóttir, sem var fararstjóri í ferðinni, tóku myndirnar.