- 12 stk.
- 21.06.2021
Sólstöðuganga í Hrísey tilheyrði gönguviku 2021, þátttaka var mjög góð eða tæplega 50 manns. Fararstjóri var Jóhannes Áslaugsson og honum til aðstoðar Marína Sigurgeirsdóttir eiginkona hans. Jóhannes tók á móti okkur í Hrísey og var ferðinni heitið norður að vitanum þar sem sólarlagið nýtur sín best. Veðrið gat ekki verið betra, logn og sólin skein. Haldið til baka með síðustu ferju kl. 23. Myndirnar tók Þorgerður Sigurðardóttir.