- 22 stk.
- 23.05.2020
Hjólaferð um Svarfaðardal rólegt veður frekar kalt og þoka til fjalla. Níu manns tóku þátt og áttum góðan dag. Hjólað frá Dalvík og farið inn að austan. Stoppað víða á leiðinni en lengst var stoppað á Húsabakka og gengið yfir í Hánefsstaðaskóg og tekið nesti þar. Endað svo á Dalvík og mældist þessi hringur tæpir 29 km. Myndasmiður Jón M Ragnarsson.