- 12 stk.
- 22.07.2020
Þessi ganga var önnur í röð gönguviku FFA í júlí. Lögmannshlíðarhringurinn var genginn með viðkomu í Lögmannshlíðarkirkju og á Hesjuvöllum þar sem Helga Björg Jónasardóttir tók á móti hópnum, sagði frá og bauð í te sem hún hefur gert úr jurtum sem vaxa á Hesjuvöllum. Fararstjóri var Þorgerður Sigurðardóttir og bætti Svala Sigurðardóttir sannarlega upp ferðina þar sem hún sagði frá ýmsu á leiðinni en hún er alin upp í Lögmannshlíðinni. Myndir Þorgerður Sigurðardóttir.