- 16 stk.
- 22.07.2020
Það var góð þátttaka í ferð FFA um Laxárdalinn. Lagt var af stað frá Rönd, gengið meðfram Sandvatni og endað við Ljótsstaði. Ingvar Teitsson leiddi hópinn þessa skemmtilegu leið. Veðrið lék við þátttakendur og margt bar fyrir augu á leiðinni eins og fjölbreytt fuglalíf, hreiður ýmsar blómategundir auk fallegarar sýnar á fjöllin í kring. Myndir Þorgerður Sigurðardóttir og Ingvar Teitsson.