- 7 stk.
- 01.01.2019
FFA efndi til gönguferðar þ. 1. jan. 2019 á austurbakka Eyjafjarðarár frá bílastæðinu neðan við Kaupang að eyðibýlinu Kaupangsbakka. Snjólítið var og veðrið var bjart og stillt en frost -12°C. Við gengum alls um 4,4 km. Þátttakendur voru alls 18 að fararstjóra meðtöldum. Fararstjóri: Grétar Grímsson, myndasmiður: Ingvar Teitsson