- 9 stk.
- 29.09.2019
Þann 04.09.19 fórum við 10 saman í 4,5 km langa göngu frá bílastæðinu neðan við Kaupang í Eyjafjarðarsveit. Við gengum vestur að austustu brúnni yfir Eyjafjarðará, svo suður að Kaupangsbakka, þá upp að Þórustöðum og loks til baka að Kaupangi.
Þann 18.09.19 fórum við 22 saman í 4,5 km langan hring um Glerárgil á Akureyri. Við gengum að Sólborg og þaðan suður klappirnar að Flúðum, þá yfir Glerá og niður með gilinu að norðvestan og skoðuðum m.a. Glerárstífluna og brýrnar yfir Glerá.