- 7 stk.
- 29.09.2019
Í september stóð FFA fyrir fjórum lýðheilsugöngum. Tvær þeirra voru ætlaðar unglingum og voru í samvinnu við félagsmiðstöðvarnar á Akureyri, 11. og 25. september. Þann 11. september var áætlað að ganga í Vaðlareit en vegna veðurs þá varð ekkert úr því. Þeir sem mættu fengu þó kakó og kleinur í húsnæði FFA.
25. september var hins vegar mjög gott veður og gengu 12 hressir krakkar og 5 fullorðnir frá Kjarnaskógi í Gamla og síðan var grillað í rökkri eftir göngu . Fjóla Kristín stjórnaði göngu ásamt Angantý frá félagsmiðvöðvunum. Myndir Herdís Alberta Jónsdóttir og Þorgerður Sigurðardóttir.