- 23 stk.
- 26.08.2019
FFA efndi til skíðaferðar þ. 30. mars 2019 norður Laxárdalsheiði í S.-Þing. Við gengum frá Nónskarðsási norður austan Másvatns og yfir Kalmanstjörn. Þaðan gengum við upp á Brúnarhallið og svo norður í Skollhólamýri og niður í Þverá í Laxárdal. Alls gengum við um 18 km í afbragðsveðri. Þátttakendur voru alls 13 að fararstjóra meðtöldum. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.