- 14 stk.
- 02.12.2018
FFA efndi til skíðaferðar frá Kröflu að Reykjahlíð þ. 14. apríl 2018. Gengið var frá bílastæðinu syðst í Kröfluöskjunni norður fyrir Leirhnjúk og þaðan suðvestur norðvestan Hlíðarfjalls og niður að flugvellinum í Reykjahlíð. Dumbungsveður var í Kröflu en batnaði síðdegis. Þátttakendur voru alls 9, fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.