- 29 stk.
- 02.12.2018
FFA efndi til gönguferðar á Öskjuveginn 20.-24. júlí 2018. Við gengum í frábæru veðri frá Dreka yfir fjöllin vestur í Öskju og nutum útsýnisins og fegurðar svæðisins. Við fengum rigningu á Jónsskarði og norður úr Dyngjufjalladal. Í Suðurárbotnum var hið besta veður. Þátttakendur voru alls 8, fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.