- 13 stk.
- 12.11.2016
Laugardaginn 12. nóv. 2016 gekk sjö manna hópur frá FFA að Skólavörðu á Vaðlaheiði. Snjólaust var og ágætt færi upp heiðina en allhvasst af suðvestri efst uppi. Við fylgdum vel troðnum og stikuðum göngustíg upp frá Veigastöðum að vörðunni. Við vorum 90 mínútur frá bíl að vörðunni og gangan til baka tók 60 mínútur. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.