- 35 stk.
- 28.06.2016
Raðgangan frá Hlíð í Skíðadal að Árskógi gekk mjög vel enda veður eins og best getur orðið. Gengum við á snjó drjúgan hluta leiðarinnar sem var mjög þægilegt. Óðum tvær ár Þverá og Hrafnagilsá og gekk það vel. Þetta er skemmtileg leið enn ansi löng 24 kílómetrar með 1060m hækkun. Þakka hörkuduglegu fólki fyrir góðan göngudag. Fararstjóri og myndasmiður Konráð Gunnarsson.