- 20 stk.
- 26.06.2015
Miðvikudagskvöldið 24. júní lagði 15 manna hópur í göngu á Laufáshnjúk. Veður var sérlega gott, eins og myndirnar bera með sér; sól, léttskýjað og logn. Gangan upp tók tæplega 2 1/2 klst. þannig að hópurinn náði toppnum rétt fyrir miðnætti.
Fararstjóri og myndasmiður var Einar Brynjólfsson.