- 9 stk.
- 01.01.2015
Farið var í hina árlegu Nýársgöngu Ferðafélagsins og lagt af stað kl. 11:15 frá bílastæðinu við Skautahöllina. Genginn var gangstigurinn meðfram fjörunni inn fyrir flugvöllinn og síðan gamli Leiruvegurinn austur yfir brýrnar, alls rúmlega 10 km. Veður var stillt og hið ágætasta gönguveður, um tveggja stiga frost og snjómugga. Þáttakendur voru alls 5. Fararstjóri var Grétar Grímsson og ljósmyndari Ingvar Teitsson.