- 23 stk.
- 09.07.2014
20140709 Knarrarnes og Miðvíkurfoss
Fyrst var gengið niður á Knarrarnes sem er innarlega á austurströnd Eyjafjarðar, um það bil beint á móti Hörgárósum, þetta er lítið nes út í fjörðinn, Nesið er nærri mörkum Svalbarðsstrandar- og Grýtubakkahrepps, um miðja vegu á milli bæjanna Garðsvíkur í Svalbarðsstrandarhreppi og Miðvíkur í Grýtubakkahreppi, Fyrrum besta þrautalending við Eyjafjörð. Mordýr hafa fundist þarna þau eru í hópur smádýra sem aðallega lifa í jarðvegi. Þau líkjast skordýrum, teljast til þeirra, hafa sex fætur eins og þau og tvo skynjara á framendanum. En mordýrin eru vænglaus og ýmis sérkenni þeirra tengja þau meira við krabbadýr en skordýr.
Síðan var aftur farið í bílana og ekið að Miðvík gengið eftir vegi langleiðina niður í fjöru og svo eftir henni að tignarlegum fossi Miðvíkurfossi.
Flestir aka fram hjá þessum stöðum.en það er þess virði að gefa sér örlítinn tíma til að skoða þá. Fararstjóri og myndasmiður Frímann Guðmundsson.