- 8 stk.
- 01.01.2014
FFA efndi til árlegrar nýársdagsgöngu þ. 1. janúar 2014. Ekið var að bílastæðinu neðan við Brunná og gengið þaðan austur yfir gömlu brýrnar að bílastæðinu neðan við Knarrarberg. Síðan var gengið sömu leið til baka. Norðan slydda var og lágskýjað en hægur vindur. Þátttakendur voru 5, fararstjóri: Grétar Grímsson, myndasmiður: Ingvar Teitsson.