- 15 stk.
- 14.08.2012
Ekið var með rútu frá Akureyri að Syðri-Tungu á Tjörnesi. Þar hófst gangan en endaði á Fjöllum í Kelduhverfi. Er þetta gömul þjóðleið. Veðrið var gott, suðaustan hlý gola var á móti okkur í byrjun en golan minnkaði og hitinn hækkaði eftir því sem leið á daginn. Fórum frekar rólega en nutum útsýnis og góða veðursins í góðum hópi. Fararstjóri og myndasmiður Sigurgeir Sigurðsson